Tími rekstrarfélaga að renna upp
Undanfarnir mánuðir hafa verið mörgum hlutafélögum á markaði mjög erfiðir. Öflug félög hafa átt undir högg að sækja og vegna mikilla eignatengsla hefur gengi hlutabréfa í mörgum fyrirtækjum haldist í hendur, svipað því sem var þegar markaðurinn einkenndist af uppsveiflunni og tengd félög hækkuðu í takt.
Þótt Teymi hafi ekki farið varhluta af ástandinu og gengi bréfa hafi sveiflast, þá hefur breytingin ekki verið eins mikil og á úrvalsvísitölunni sjálfri og langt frá því sem gerst hefur með öflug fjárfestingafélög. Skýringa á því er hugsanlega að leita í tiltrú fjárfesta, sem vilja færa eignir sínar í félög sem byggja á tryggum rekstri og eru líkleg til að skila góðri og öruggri rekstrarafkomu. Ef það er raunin má fullyrða, að tími rekstrarfélaga eins og Teymis sé runninn upp og árið 2008 verði félaginu afar hagstætt.
markvisst lækkaðar og áhugi fjárfesta á hlutum í félaginu var helmingi meiri en framboðið í hlutafjárútboði sem efnt var til í mars. Allt hefur þannig haldist í hendur; rekstrarlegur árangur einstakra fyrirtækja innan samstæðunnar, markviss stjórnun félagsins og tiltrú fjárfesta. Kennitölur í ársreikningum sýna glögglega hve innviðir Teymis eru sterkir og hve miklu hefur verið áorkað á stuttum tíma, frá stofnun félagsins.
Nafnvirði hlutafjár í Teymi hf. er um 3,6 milljarðar króna og hluthafar eru um þúsund talsins - stórir og smáir.